mánudagur, janúar 22, 2007

Byrjaði að snjóa í morgun, eftir að það er búið að rigna stanslaust í 20 daga og flæða inní hús og kjallara. Skólinn byrjaði strax af fullum krafti 3 janúar og nóg að gera. Þessi önn verður samt þokkalega fljót að líða þar sem maður fær viku vetrarfrí í febrúar og svo ætla ég heim í langt páskafrí og svo auðvitað allir frídagarnir í maí.. ekki má gleyma þeim.
Ég byrjaði í nýrri vinnu um þarsíðustu helgi, en ég vinn á laugardögum á veitingarstað í Field´s, rosa stuð og nóg að gera.
Búin að fara í tvenn jólahlaðborð í þessum mánuði, svoldið seinir í þessu danirnir en þetta hentar miklu betur heldur en að fara í desember því þá hefur maður meira en nóg að gera, annað en í janúar. Það er svo sum ekki mikið meira að frétta héðan úr köben. Jú það eru fullt fullt af tónleikum á næstu mánuðum og mig langar svo á þá alla saman að ég á í erfiðleikum með að velja úr, en ég hlýt að finna út úr því
Adjö