fimmtudagur, nóvember 27, 2003

Jú ég er víst á lífi þó ég hafi ekki bloggað neitt síðan hvað í september.
Loksins er skólinn að verða búinn,
ef þið haldið að það sé eitthvað djók að vera í förðunarnámi þá er það ekki rétt, hefði aldrei trúað vinnunni í kringum þetta. Svo hjálpar náttla ekki til að vera í fullri vinnu með. Sem betur fer er ég á lausu og þarf ekki að hugsa um nein börn :)
Ég er farin að telja niður til jóla og verið að reyna að gera allt sem þarf að gera fyrir jólin. Það passar náttla að þegar ég er að sleppa úr skóla þá hafa allir manns nánustu ákveðið að leggjast undir feld í prófundirbúningi.
Gangi ykkur öllum bara sem best. Vonandi sér maður ykkur samt fyrir jól.