miðvikudagur, apríl 28, 2004

Vinkona mín í Noregi hún Elísabet á afmæli í dag

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Elísabet hún á afmæli í dag

Til hamingju með daginn sæta



mánudagur, apríl 19, 2004

Jæja fyrir ykkur sem ekki lesið bloggið hennar Hebu þá er ég búin að kaupa mér miða á Hróarskeldu. Það eru ca 69 dagar í dag þangað til ég fer út. Vá hvað tíminn hleypur hratt. Við stefnum semsagt á að flytja út 28 eða 29 júní og svo kem ég ekki heim fyrr en um jólin. Þetta verður ekkert smá ævintýri, sérstaklega ef ég fæ ekki íbúð fljótlega. Litlu djammararnir sem ég hef hingað til treyst fyrir félagslífi mínu eru nú sokknir ofaní skólabækur og próflestur, gangi ykkur vel í prófunum og ég held ég taki mér smá pásu þangað til þið verðið búin í prófunum(annars á ég ekki að vera með neinar yfirlýsingar) you never know what you gonna get.

the blower's daughter

and so it is
just like you said it would be
life goes easy on me
most of the time
and so it is
the shorter story
no love no glory
no hero in her skies
i can't take my eyes off of you
and so it is
just like you said it should be
we'll both forget the breeze
most of the time
and so it is
the colder water
the blower's daughter
the pupil in denial
i can't take my eyes off of you
did I say that I loathe you?
did I say that I want to
leave it all behind?
i can't take my mind off of you
my mind
'til I find somebody new

Damien Rice

miðvikudagur, apríl 14, 2004

Nunnulíf!!!

Ég rakst á þetta hjá henni hebu vinkonu sem rakst á þetta hjá vinkonu hans magga og þar sem við heba höfum svipaðar skoðanir á flestu þá er ég algjörlega sammála hebu og vinkonu hans magga

Fyrir nokkrum mánuðum var athyggli mín vakin á því að fólk væri alveg hætt að byrja saman og
fara á "date" og þess háttar. Síðan er eg búin að vera að skoða aðstæður og þróun þessara mála.
Og niðurstaðan er þessi,
Það eiga allir bara "vini". Og það er alveg merkilegt hvað er flókið að eiga þennan "vin". Þar
sem ég er stelpa þá ætla ég að tala útfrá stelpu, en þetta á alveg eins líka við í hina áttina.
En svona virkar þetta:
Fólk bíður alla vikuna eftir að hella sig blindfullt til að hitta vin sinn
, það má ekki fara að tala við hann strax því að það gæti sýnt að þú hafir of mikinn áhuga, og þú mátt ALLS EKKI vera lítið í glasi eða edrú því að þá gefuru það sama til kynna.
Kvöldið endar og loks farið þið heim saman . Morgunin eftir má ekki vera of náinn eða tala of mikið saman,
heldur verður fólk að hoppa í fötin með brundið í nærbuxunum og drífa sig af stað heim og þykjast vera allt of upptekið til að standa í þessu !! Og það eru ekki bara stelpur með lágt sjálfsmat sem sem sætta sig við þetta
heldur líka bara AÐAL-gellurnar í bænum! Hver kannast ekki við þetta....????
Afhverju er fólk að sætta sig við þennan hamborgara þegar steikin er í boði?
Er þetta þróun mála?
Verða bara slysabörn í skólum 2011?
Telstu boring ef þú átt kærustu?
Eða á fólk svona erfitt með að finna einhvern við sitt hæfi?
Verð ég kannski bara barin fyrir að vekja máls á þessu?
Er þetta ástæðan fyrir því að ég sé orðin nunna?
Eða er kannski bara munaður að vera á lausu:-)
Ef svo er þá vil ég vera fyrst til að bjóða pörunum sem "splitta í ár velkomið í þennan munað

ps. auglýsi hér með eftir vin sem er til í að breyta til og sleppa klisjunni!

fimmtudagur, apríl 08, 2004

Gulir fuglar

út um allt sem segir mér að ég er komin í páskafrí eða ég held það allavega. Svo ég fái nú ekki fráhvarfseinkenni þa akvað ég nú að vinna í dag fyrir eina í flugstöðinni. Ég fór í bústaðinn með fullt af liði um þarsíðustu helgi og var heljarinnar djamm og gaman og leiðilegt að fleiri úr hinum sögufræga aðli skyldu ekki láta sjá sig.
Ég er búin að vera að æfa magadans síðustu 4 vikur loksins fann ég íþrótt sem ég hef líkamlega burði í. natural talent út í gegn. Það var haldið upp á þetta allt saman á NASA þar sem var arabískt hlaðborð og magadans show af bestu gerð, hlakka ekkert smá til að verða svona klár einsog þessar sem voru að sína, en þær voru frá aldrinum 15-45 ára og allar mjög flottar. Svo endaði kvöldið með svaka balli með pöpum á eftir, eg man ekki eftir því að hafa dansað/hoppað svona einsog hálfviti í langan tíma. (Takk fyrir gistinguna dúnna) ætlaði nú bara að keyra heim eftir ballið en barinn heillaði svo mikið að ég varð eftir í bænum.
mer tókst að eyðileggja ferðaplön fjölskyldunnar (er ofboðslega ómissandi) með því að taka að mér aukavinnu í innritun og búðinni. En ætli ég hefði nokkuð farið með á annað borð, dunno?
Heba er búin að sannfæra mig um að koma að djamma um helgina og við búnar að birgja okkur upp af hollustudrykkjum.


Gleðilega páska, etum og drekkum og verum glöð!