miðvikudagur, apríl 14, 2004

Nunnulíf!!!

Ég rakst á þetta hjá henni hebu vinkonu sem rakst á þetta hjá vinkonu hans magga og þar sem við heba höfum svipaðar skoðanir á flestu þá er ég algjörlega sammála hebu og vinkonu hans magga

Fyrir nokkrum mánuðum var athyggli mín vakin á því að fólk væri alveg hætt að byrja saman og
fara á "date" og þess háttar. Síðan er eg búin að vera að skoða aðstæður og þróun þessara mála.
Og niðurstaðan er þessi,
Það eiga allir bara "vini". Og það er alveg merkilegt hvað er flókið að eiga þennan "vin". Þar
sem ég er stelpa þá ætla ég að tala útfrá stelpu, en þetta á alveg eins líka við í hina áttina.
En svona virkar þetta:
Fólk bíður alla vikuna eftir að hella sig blindfullt til að hitta vin sinn
, það má ekki fara að tala við hann strax því að það gæti sýnt að þú hafir of mikinn áhuga, og þú mátt ALLS EKKI vera lítið í glasi eða edrú því að þá gefuru það sama til kynna.
Kvöldið endar og loks farið þið heim saman . Morgunin eftir má ekki vera of náinn eða tala of mikið saman,
heldur verður fólk að hoppa í fötin með brundið í nærbuxunum og drífa sig af stað heim og þykjast vera allt of upptekið til að standa í þessu !! Og það eru ekki bara stelpur með lágt sjálfsmat sem sem sætta sig við þetta
heldur líka bara AÐAL-gellurnar í bænum! Hver kannast ekki við þetta....????
Afhverju er fólk að sætta sig við þennan hamborgara þegar steikin er í boði?
Er þetta þróun mála?
Verða bara slysabörn í skólum 2011?
Telstu boring ef þú átt kærustu?
Eða á fólk svona erfitt með að finna einhvern við sitt hæfi?
Verð ég kannski bara barin fyrir að vekja máls á þessu?
Er þetta ástæðan fyrir því að ég sé orðin nunna?
Eða er kannski bara munaður að vera á lausu:-)
Ef svo er þá vil ég vera fyrst til að bjóða pörunum sem "splitta í ár velkomið í þennan munað

ps. auglýsi hér með eftir vin sem er til í að breyta til og sleppa klisjunni!