miðvikudagur, nóvember 22, 2006


Hæ hæ þið þarna. Ef það er einhver sem les þetta, ég er búin að vera svo löt við þetta blogg sorry... En síðan síðast þá er hellingur búinn að gerast t.d. fór til Parísar, Kanarí, Bíó(gerist mjög sjaldan), MTV i köbenhavn. Fékk að kryfja grísa augu í morgun, geggjað gaman, ekki með hanska eða neitt algjör hetja!


PARÍS
Fór til Parísar með skólanum á risa stóra gleraugnasýningu, vissi ekki að öll þessi merki væru til eða að allir þessir merkjaframleiðendur væru með gleraugnalínu einsog t.d. Playboy!
Tókum smá túristarúnt á þetta og fórum að Eiffel turninum, kíktum í Sacré coir, Notre Dame, röltum Champs Elyssé, fórum fyrir utan Louvre og Sigurbogann. Veðrið var æðim, 15 stiga hiti og sól í enda október...ótrúlegt. Versluðum aðeins á mánudeginum áður en við fórum heim og eyddum síðustu evrunum okkar...eða þeir sem áttu einhverjar. En við vorum ekki svo heppin með hótel. Okkar bekkur og einn annar vorum svo heppin að vera á hóteli næstum við hliðiná Moulan Rouge (sá hana líka btw!). Ansi skrautlegt hverfi. Á móti hótelinu var hægt að fá lapdance, svo var sportbar og á horninu leikfangabúð (og nei það var ekki hægt að kaupa bangsa og playmo þar). En hótelið er eitt það ógeðslegasta sem ég hef séð og ég var ekki ein um það. Reyndum að fá okkur færð en það gekk ekki því það var allt upppantað útaf sýningunni.
Það voru t.d.
lýs og flær í rúmunum í einu herbergji
skaphár og blettir i rúminu á öðru herbergi
strákarnir voru svo heppnir að 2 rúmum hafði verið breytt í eitt hjónarúm og sváfu þar 4 saman herbergisfélagi minn svaf á skápshurð sem var lögð a grind og dýna þar yfir og kallaðist rúm
Það var rifa á hurðinni þó hún væri lokuð
Dúfur og dúfnaskítur í baðherbergisglugganum
Sáum konuna einu sinni þrífa og hún sprautaði w.c. ilmi á koddana
og svo má ekki gleyma aðdáandanum í blokkinni í garðinum, sem lá meira og minna
útí glugga og horfði inná herbergin
Kallinn sem sá um hótelið og "morgunmatinn" var í sama bolnum frá því við komum
og þangað til við fórum, fékk að kynnast ógeðslegustu svitalykt í heiminum á mánudeginu þegar kvefið var að lagast

En að öðru leiti var mjög gaman í parís og við þökkuðum bara fyrir það að þurfa ekki að fara á hótelið nema til að sofa.

Kanaríeyjar

Smá ferðalag, flaug frá Köben til Madrid og þaðan til kanarí, mamma, pabbi, amma og afi biðu eftir mér á flugvellinum brún og sæt
Afi varð 70 daginn eftir og við fórum um morguninn inná herbergið hjá þeim og sungum fyrir hann afmælissönginn og fleiri skemmtileg lög. Lágum svo í sólbaði (enda 25-30stiga hiti) restina af deginum og kíkti aðeins á umhverfið þarna. Fórum svo í myndatöku áður en við fórum öll út að borða á geggjaðan veitingastað, aldrei fengið svona gott nautakjöt áður, það var perfect. Fengum svo köku og kaffi, ekkert smá grand staður og æðislega skemmtilegt kvöld og allir svo sætir og fínir. Svo enduðum við kvöldið á VIP lounge á einhverjum klúbb niðrí bæ.
Svo eyddi ég bara helginni í að taka því rólega með familíunni. En ólíkt parísarferðinni vorum við á ekkert smá flottu hóteli, vorum í bungalo, og deildi herbergi með litlu rúsínunni minni honum brynjari sem er orðinn stærri en ég!!! og sterkari :o / og við vorum með sér baðherbergi og hurð útá svalir og svo deildum við stofu og eldhúsi með m&p. Endaði svo ferðina á kvöldverði með öllum 25 á veitingastað sem kona úr njarðvík á, rosa góður matur, allt gott sem er íslenskt! og kíkti á mini djamm með svavari, sigurrós og hjalta. Svo var farið af stað heim eldsnemma á mánudeginum til frankfurt og svo til köben.

Ég er búin að fljúga 10 flug á innan við 4 vikum og auðvitað gat það ekki endað perfect en þetta var annars allt búið að ganga vel. Fékk martröð nóttina áður en ég flaug til frankfurt að tékk inn gellan hefði eitthvað klúðrar töskunni og ég hefði þurft að ná í hana og tékka aftur inn í frankfurt og rétt náð flugi til cph. þannig að ég passaði sko vel uppá að taskan væri tékkuð alla leið til cph fra kanarí. Svo lendi ég í köben og nei enginn taska a bandinu, ég hélt ég myndi tapa mér, beit á jaxlinn og með tárin í augunum og kökk í hálsinum fór ég og talaði við SAS kall, sem mig langaði mest til að öskra á en ég hef setið í hans sæti og veit að þetta er ekki honum að kenna. En taskan kom með næsta flugi og ég fékk hana keyrða heim næsta dag.

MTV music awards voru haldin með rosa látum köben, fór út að borða með Kathrin á Vesterbro sama kvöld og svo röltum við uppá Ráðhústorg og hlustuðum á Killers, Snoop Dog og eitthvað annað, þangað til tærnar gáfust upp af kulda, en djísus hvað það var kalt þetta kvöld. Svo var hinn helmingurinn haldinn í Bella Center en ég á heima bara eiginlega við hliðiná og bjóst náttla við að Justin og hinir gæarnir myndu kíkja yfir á okkur stelpurnar eftir hátíðina en þeir hringdu og sögðust vera svo þreyttir eftir kvöldið þannig að við hittum þá bara næst þegar þeir koma til köben.
BORAT

Fór á Borat á föstudaginn með Jórunni og Styrmi. Langt síðan ég hef hlegið svona mikið á einni mynd, fékk samt ansi oft kjánahroll og vissi ekki hvort maður ætti að hlæja eða hneykslast, hláturinn vann samt yfirleitt, en það komu oft vandræðalegar þagnir í salnum, sérstaklega þar sem ansi margir írakar búa hérna og múslimar. Kíktum svo á Streckers Cocktailbar og hittum Birgittu, Pétur, Taníu, Inda og Söru, eignuðum okkur staðinn og DJ inn var meira og minna farinn að spila bara fyrir okkur, ekki leiðinlegt.


HELGIN

Svo mamma að koma á morgun, ætlum út að borða og rölta í tívolíinu og fá okkur eplaskífur á nyhavn. Er líka að fara á Julefrokost í Wallmans Cirkus byggingunni á laugardaginn með vinnunni, sem er víst rosa flottur staður og matur og show og opinn bar þannig að þetta verður svaka skemmtilegt kvöld.


Já ef þú ert enn að lesa þá ætla ég að kveðja héðan úr rokinu og rigningunni og það fer að koma að ég set myndirnar inn ;)

laugardagur, nóvember 18, 2006

men men men men , menmen men dúdú dúrú dúrú dú ahhhaaaa


1.HVERS VEGNA ERU KARLMENN GÁFAÐARI MEÐAN ÞEIR HAFA MÖK? vegna þess að þeir eru tengdir við snilling!

2.HVERS VEGNA BLIKKA KONUR EKKI AUGUNUM MEÐAN ÞÆR HAFA MÖK? þær hafa einfaldlega ekki tíma!

3.HVERS VEGNA ÞARF MILLJÓNIR SÆÐISFRUMA TIL AÐ FRJÓVGA EGG? þær stoppa ekki til að spyrja vegar

4.HVERS VEGNA HRJÓTA KARLMENN ÞEGAR ÞEIR LIGGJA Á BAKINU? pungurinn fellur yfir rassgatið og stöðvar gegnumtrekkinn

það eru nú einhverjir farnir að glotta núna, er það ekki???

5.HVERS VEGNA FENGU KARLMENN STÆRRI HEILA EN HUNDAR? annars væru þeir riðlandi á fótleggjum kvenna í kokteilboðum

6.HVERS VEGNA SKAPAÐI GUÐ MANNINN Á UNDAN KONUNNI? þú þarft jú gróft uppkast áður en þú gerir lokaútgáfuna

7.HVE MARGA KARLMENN ÞARF TIL AÐ SETJA KLÓSETTSETUNA NIÐUR? hmm, veit ekki.....það hefur ekki gerst ennþá Og síðast en ekki síst......

8.HVERS VEGNA SETTI GUÐ KARLMANNINN Á JÖRÐINA? vegna þess að titrari slær ekki garðinn

Fékk þetta lánað frá blind, algjör snilld