Snjórinn var ekki lengi að koma sér héðan í burtu. Búnir að vera æðislegir dagar hérna í janúar og byrjun febrúar, trúi varla að janúar sé búinn, lokaprófin í sumar verða komin í næstu viku ef tíminn heldur áfram að fljúga svona áfram.
Kíkti í keilu um síðustu helgi, ætluðum að hafa skemmtilegt kósý kvöld nokkur saman sem endaði ekki betur en svo að okkur var hent út um 11 leytið og áttum enn klukkutíma eftir af leiknum! Ástæðan var að gæinn á þarnæsta bane var stunginn í lærið, slagsmálin eru semsagt ekki bara á skemmtistöðunum niðrí bæ. Áður en við vissum af var allt fullt af löggum og blóð útum allt og skýrslutaka og læti. (ok þetta var nú ekki alveg eins slæmt og þetta er lesið). Spurning um að fara að halda sig bara heima hjá sér. En þar sem janúar og febrúar eru með eindæmum leiðinlegir mánuðir er ég að reyna að gera eins mikið og ég get í því að skemmta mér um helgar (án áfengis að sjálfsögðu). Kíkti í þrítugs afmæli hjá kærasta frænku minnar, en hana hafði ég ekki séð í ca 10 ár ef ekki meir og hún býr í 15 mín frá mér. Fer nú kannski að sjá aðeins meira af henni, greyið hún losnar ekki við mig núna hahaha.
Svo eru tónleikar á Loppen 7 febrúar með Pétri Ben og að sjálfsögðu verð ég að mæta á þá þrátt fyrir að hafa ekki hlustað á tónlistina hans en hef bara heyrt góða hluti um hana samkvæmt tónlistargúrúunum mínum. Svo er það heimsókn til Århus um helgina ef ég fæ frí í vinnunni, annars er það vinna og djamm í malmö þannig að það er rosalega skemmtileg vika framundan hjá mér, vona að hún verði líka skemmtileg hjá þér
Elísabet í köben
Ég kannast ekki við mistök - ég sé tækifæri til að læra
sunnudagur, febrúar 04, 2007
Hey þú og velkominn á síðuna mína. Mundu að kvitta fyrir komuna.
Gestabók:
Aðrir bloggarar:
Litlu krílin mín:
Hitt og þetta:
Gamlar færslur:
- Sólin lét loksins sjá sig í Kaupmannahöfn í dag og...
- Justin here we come ;)
- Þetta sæta par er búið að vera gift í 25 ár í dag...
- Síðasti skóladagur í dag, trúi ekki að ég sé búin ...
- Smá updateég trúi ekki að dagurinn í gær er kominn...
- Bara sætt eflaust það sem að margir í heiminum fá...
- Pick your birthday month and read it♥ JANUARY = CR...
- Bandbrjálaðir baunarAllt að verða vitlaust hér í k...
- Snjórinn var ekki lengi að koma sér héðan í burtu....
- Byrjaði að snjóa í morgun, eftir að það er búið að...
Gamalt:
- september 2003
- nóvember 2003
- desember 2003
- janúar 2004
- febrúar 2004
- mars 2004
- apríl 2004
- maí 2004
- júní 2004
- júlí 2004
- ágúst 2004
- september 2004
- október 2004
- nóvember 2004
- desember 2004
- janúar 2005
- mars 2005
- apríl 2005
- júlí 2005
- ágúst 2005
- september 2005
- október 2005
- nóvember 2005
- desember 2005
- janúar 2006
- febrúar 2006
- mars 2006
- apríl 2006
- maí 2006
- júní 2006
- júlí 2006
- september 2006
- október 2006
- nóvember 2006
- desember 2006
- janúar 2007
- febrúar 2007
- mars 2007
- júní 2007
- júlí 2007
- Current Posts