Ég er búin að vera að bíða eftir svari frá köben um hvort ég fái inn í skólann eða ekki....
Kíkti með Rósu og Andreu á Duus og Birni og sagði þeim að ef ég kæmist ekki inn þá myndi ég bara skella mér með þeim í heimsreisuna, næstu tólf tímana var ég heltekin af ævintýraþrá og það komst ekki margt annað að í hausnum á mér en heimshornaflakk (var farin að krossa fingur og vonast til að komast EKKI inn). fólki leist nú ekki vel á þessa dagdrauma mína og var hringt til köben á stundinni og hálftíma seinna fékk ég að vita að ég komst inn! Jibbí.....????
Jú ég er orðin rosalega ánægð með þetta núna eftir að ég komst aftur í snertingu við jörðina og ekki versnaði það þegar heba hringdi í dag og sagði mér að hún hefði komist inn í skólann í köben líka (samt ekki sami skóli).
So now you know....Köbenhavn here I come
svona verður lífið í köben heba