fimmtudagur, júlí 06, 2006

Be careful what you wish for

Ég einsog svo margir fleiri var farin að kvarta yfir sumarleisinu hérna í köben og svo kom það með stórum skell eftir nokkrar rigningarvikur. Ég held ég sé búin að fá meira en nóg af þessum hita í bili, má alveg vera í kringum 18-20 en þegar þetta er alveg við 30 gráðurnar úff þá langar mig bara til að liggja í kaldri sundlaug sem er ekki alveg í boði.
Vinkona mín er alveg sjúklega hrædd við flugur og skordýr og ég hlæ og hlæ að henni en ég held að hún sé byrjuð að yfirfæra þessa geðveiki sína yfir á mig. Ég er allavega farin að sofa með flugnaspaðann við hliðiná mér á næturnar sérstaklega eftir atvik síðustu nætur, þar sem ég ætlaði að sofa með galopna glugga útaf öllum hitanum og það flugu náttla allar skordýrategundir inn til mín og ég hoppaði um einsog asni á naríunum að reyna að drepa kvikindin áðuren ég gat lokað glugganum,oj ekki pretty picture. En þetta geta verið stórhættuleg kvikindi, meira að segja statsministerinn var stunginn af býflugum í dag og hefði getað dáið.... /í versta tilfelli
Síðustu roskilde fararnir farnir heim á klakann. Held ég venjist því aldrei að fólk þurfi alltaf að vera að fara heim aftur... er svo tómlegt á eftir en þetta fer vonandi að venjast. Var svo mikið að hugsa um að kveðja gæana mína í gærkvöldi að ég steingleymdi að fara á tónleikana með hjálmum, what´s wrong girl!
En ég held að roskilde festival hafi aldrei farið betur, allavega ekki orðið vör við neitt í fréttunum nema að það er 18 ára strákur týndur og er örugglega ennþá á svæðinu.

sendi ykkur smá sól og hita frá köben, goða helgi

ps. fer alveg að setja inn nýjar myndir ;)