
Jólin jólin alls staðar
Hér kemur mitt mánaðarlega blogg, ég er alveg ótrúlega dugleg í þessu!
Héðan úr Kaupmannahöfn er allt gott að frétta, allavega úr mínu hverfi. Á meðan flestir eru að keppast við að lesa fyrir síðustu prófin og kaupa síðustu jólagjafirnar og reyna að hafa það huggulegt rétt fyrir jólin, berjast bandbrjálaðir unglingar útá Nörrebro fyrir Ungdomshúsinu. Hef ekki verið mjög dugleg að fylgjast með þessu máli en ég veit bara að þá á að selja það og krakkarnir alveg spinnegal yfir að fá ekki að hafa húsið lengur. Allt pönkara og goth lið. Gatað í tætlur, hvítari en lík og svartklædd og svartmáluð. Lækkert! Og mann langar ekkert til að mæta þeim á leiðinni heim um helgar.
En ég er að fara í síðasta prófið mitt á þriðjudaginn, hlakka svo til þegar þetta verður búið og maður getur farið að njóta jólanna. Er að verða búin að öllu fyrir heimferðina, næstum allar jólagjafir komnar í hús og innpakkaðar, jólakortin verða skrifuð í kvöld (ef ég verð í stuði), jólakonfektið tilbúið og þá er það bara stærsti hausverkurinn eftir.....jólafötin!
Er ekki ennþá að trúa því að eftir viku eigi ég eftir að sitja við stofuborðið með fjölskyldunni og borða jólamatinn. Það er svo ekki jólalegt hérna úti, bara myrkur og fullt af rigningu og roki og ég hef ekki einu sinni haft tíma til að skreyta fyrir jólin, mætti halda að heiðingji byggi hérna.
Bara 5 dagar í jólafrí og ég er farin að hlakka til að "hygge mig" með vinum og fjölskyldu. Ógeðslega ætla ég að hafa það gott um jólin og óska ykkur þess sama