miðvikudagur, mars 01, 2006

Steingeit (22.des - 19.jan)
Haltu fast í jákvætt viðhorf þitt og ekki síður einlæga og hreina góðmennsku. Hér birtist björt framtíð þín þar sem þú skilur eftir erfiðleika og tekst á við nýja og betri tíma.

já ég vil halda að ég sé rosalega góð manneskja, en ég einsog allir á mínar skugga hliðar múhahaha..... eyddi frídeginum með jórunni einsog alla aðra daga. Við erum alveg ótrúlegar tyggjóklessur. Við erum saman öllum stundum og varla farnar út um dyrnar frá hvor annarri þá erum við mættar á msn að kjafta eða komnar í símann!
Við fórum til Hellerup að reyna að sækja um þessar blessuðu húsaleigubætur sem ætlar að verða the never ending story. Þetta tekur svo langan tíma þegar maður á bara einn frídag í viku. Við mættum að sjálfsögðu 5 mín í lokun og manneskjan sem sér um okkar kollegí var veik og gátum ekki fengið umsóknina útfyllta þannig að ég þarf að bíða í enn eina vikuna eftir að fara með hana svo á kommúnuna og klára að fylla þetta út. Kannski stjörnuspáin um björtu framtíðina sé að ég fái rosalega háa upphæð í leigubætur og erfiðasti tíminn í vinnunni liðinn. En ég er að verða komin ansi vel inní allt þar en omg hvað það er mikið sem maður þarf að læra þar, aðeins flóknara en í gleraugnabúðinni heima.
Eyddum svo seinni eftirmiddagen á kaffe kys með birgittu og fengum okkur að borða og hlógum út í eytt í nokkra tíma
jæja ætla að koma mér í háttinn... svona einu sinni fyrir miðnætti ;)