sunnudagur, febrúar 19, 2006

Töff Töff Töff

Til hamingju Ísland með að Sylvía Nótt skyldi vinna þetta. Kominn tími til að við hættum að taka þessa keppni alvarlega og höfum bara gaman af og látum einsog fífl.
Bara búin að vera að vinna vinna og vinna, svaka gaman. Er reyndar farin að hlakka pínu til að komast aftur í skóla og ráða deginum pínulítið meira sjálf.
Hvað er eiginlega að sumu fólki??? Ok mér finnst alltí lagi að sjá fólk kyssast úti á götu og fólk gerir meira af því hérna en kannski á Íslandi t.d. og finnst mér það bara sætt. EN.. þarf það að setjast hjá manni í metro og slefa uppí hvort annað alla helv. leiðina heim? ég bara spyr.... finnst þetta bara asnalegt

Ég lappaði aðeins uppá nágranna mína á föstudagskvöldið, skellti strípum í jórunni og hressti aðeins uppá hanakambinn á Jóni. Birgittu fannst þetta nú bara nokkuð vel gert hjá mér, spurning hvort ég taki þetta að mér á kollegíinu eða hvort ég sé á rangri hillu í lífinu.


Jórunn hélt eurovision partý fyrir okkur á laugardaginn, svaka stuð og mikið sungið og dansað. Takk fyrir mig Jórunn
Byrjað að plana fermingarafmælið, oh my god hvað mar er orðinn fullorðinn, hlakka til að mæta og hitta alla úr árgangnum Long time no see, þ.e. ef maður kemst.