þriðjudagur, desember 13, 2005

Draugaferðir frá Ørestad?

Vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið í morgun þegar ég kom út á lestarstöð í morgun. En þegar ég var á leiðinni á metro stöðina mæti ég marseringu af draugum með fána. Já draugum en það er svona fólk sem klæðir sig í svört lök frá toppi til táar. Svo á leiðinni í metro sé ég lögreglumenn út um allt OMG ég sem býð eftir þeim degi að eitthvað gerist í metro. En þetta er nú ekkert í fyrsta skipti þannig að ég ákvað að halda för minni bara áfram engin þörf á neinni móðursýki. Kíkti í Urban (dagblað) og rekst þá á kosningar Íraka í danmörku haldnar í Bella Center og þar með fékk ég skýringu á öllum draugunum og lögreglumönnum!
Á leiðinni heim um 3 leit ég út um gluggann hjá Bella Center en það var einmitt bannað að fara þar út í dag útaf þessu öllu saman, en fjöldinn af lögreglumönnum, fullt af hundum og allt sperrt af. spes ha. Vona að þetta verði ekki svona þegar ég fari að kjósa í íslenska sendiráðinu (djók). Og svo voru þeir með rútuferðir fyrir liði frá örestad til bella center.

anywayz þá eru bara 2 dagar þangað til ég kem heim í jólafrí, ég er orðin alveg rosalega spennt og búin að næstum öllu jólastússi í köben. Allar gjafir komnar í hús og verða vonandi komnar ofan í ferðatösku í kvöld. Ætla að reyna svona einu sinni að vera tímanlega að hlutunum. Ætla að reyna að kíkja í JólaTívolí í kvöld eða á morgun, svona aðeins að kíkja áður en ég fer heim. En ég hlakka ekkert smá til að sjá ykkur og knúsa í klessu. Sjáumst!!!!!!