föstudagur, október 28, 2005

já margt búið að gera og gerast síðan síðast. Björn og Andrea komu í heimsókn 13 október og voru í köben á menningarnótt, kíktum á tískusýningu í galleríinu hjá Sossu en þetta var ekkert smá flott sýning, held það hafi bara verið íslendingar sem stóðu á bak við þetta. Rákum inn nefið hér og þar en við fórum með Magga, Bigga, Jóa og Kristjönu á röltið og djammið alla helgina. Á sunnudeginum var "síðasta kvöldmáltíðin" en við borðuðum í Spiseloppen í Christianiu, kom á óvart, ég hefði örugglega borðað allt ef ég hefði ekki verið svona þunn. En helgin var bara skemmtileg í alla staði.

Haustfríið byrjaði þegar Andrea vinkona og Björn frændi fóru heim. Ég ætlaði að fara til Trondheim í heimsókn en ég er svo heppin að vera komin með samning að ég fékk að fara í vinnuna þessa frí viku. Samstarfsfólkið er bara æðislegt, líkar rosalega vel við þau, bara tungan á mér sem er til vandræða því hún ætlar ekki að taka í mál að verða dönsk.

Var að byrja á Salsa námskeiði, svaka stuð, rétt aðeins um 40 manns í tíma með mér og Jórunni í þessu líka litla rými en við verðum orðnar ekkert smá klárar um jólin ;)

En hápunktur vikunnar er að ég er búin að fá íbúð. Fæ hana afhenta 1 desember, verð bara að bíða þolinmóð þangað til, en ég er búin að liggja á IKEA síðunni og skoða húsgögn og ef þú ert vinur minn þá ertu velkomin/nn í heimsókn þegar allt verður klart.

ætla að fara heim og brainstorma og ath hvort ég finni einhvern búning fyrir Halloween partýið á morgun.