laugardagur, apríl 02, 2005

Formaður snillingafélagsins

Byrjaði í afgreiðslunni í morgun hjá IGS og kvaddi mitt stutta en annars ágæta starf hjá póstinum. Rétt náði 4 tíma svefn fyrir vaktina og mætti hress og kát og tilbúin að vinna alla helgina. Fékk að vita þegar ég mætti að ég væri á vitlausri vakt og er í helgarfríi...... á semsagt ekki að mæta fyrr en á mánudag. Er hægt að fá betri fréttir klukkan hálfsex á föstudagsmorgni, vitandi að maður hefði getað sofið út?