mánudagur, nóvember 08, 2004

Helvíti skemmtileg helgi

Þegar það eru engin plön þá verður einhvern veginn alltaf skemmtilegast, kannski af því að maður hefur svo litlar væntingar. Á föstudaginn kom fyrsti julegbrug í búðir og var búin að frétta að það hefði verið ógeðslega gaman í fyrra á þessum degi niðrí bæ og drullulangaði að fara. Vildi svo vel til að það var Austfirðingaráðstefna heima hjá Hebu og Magga og ég gat náttla ekki látið mig vanta (þó að ég sé nú enginn austfirðingur). Enduðum náttla á skralli niðrí bæ langt fram á morgun. Öll (eina) plön laugardagsins ruku út í rassgat, vorum búnar að ákveða ýkt langan og góðan dag í ræktinni en svo var ikea eitthvað meira spennandi. En birgitta og inga voru aðeins lengur að vinna en vanalega og vorum orðnar of seinar í ikea svo að við fórum út að borða á Italiano og kíktum í búðir og þræddum svo fullt af misfallegum pöbbum fram á miðnætti, ég náttuglan var náttla ekki tilbúin að fara heim um miðnætti þar sem ég var fyrst að vakna og komast í gírinn þá svo að ég kíkti aftur í austfirðingareunion og aftur var tjúttað fram á morgun. asskoti skemmtileg helgi. En svo styttist og styttist í að mamma komi í heimsókn :) og bara frí í skólanum á morgun. Er alveg hætt að fatta þennan skóla, þeir svissa dögunum bara á milli einsog þeim hentar og mánudagar verða alveg rosalega oft miðvikudagar einsog í dag og svo ákváðu þeir bara að sleppa þriðjudeginum alveg, ætla nú ekkert að vera að kvarta yfir því. peace out!