föstudagur, október 01, 2004

Allt gott að frétta héðan úr stórborginni. Nóg að gera í skólanum og kennararnir eru mjög duglegir þessa síðustu daga fyrir haustfrí að búa til próf eða stór verkefni. Var farin að horfa til helgarinnar með hrylling í augunum að lesa fyrir Arbejdsmiljö próf (áfangi sem við erum ekki alveg að fatta íslendingarnir) og það gildir víst 2/3 af lokaeinkunn þannig að það er best að standa sig en nei þá ákvað líffræðikennarinn að skella einu ágætis hópverkefni fyrir bekkinn þannig að í staðinn fyrir að drekka alkahól þá fæ ég að lesa um það og skrifa smá ritgerð jibbý!
Ein ógeðslega pirruð eitthvað. En ég er búin að vera löt að skrifa því að fyrir utan skólann þá er ég að vinna í því að sækja um samning og þetta er allt að koma núna. Ákvað að drífa mig allavega og hætta að hlusta á þennan rasista námsráðgjafa sem segir okkur bara að fara heim því enginn dani vilji ráða okkur íslendingana! En sem betur fer eru ekki allir danir svona og eftir smá tal við dönsku kennarann þá dreif ég mig af stað.
Búin að panta flug heim fyrir jólin og ég lendi á klakanum 20 des.
Svo styttist í haustfríið just one more week. Það verður ekkert smá nice (nema kennararnir verði ennþá í sínu ofvirka verkefnaskapi) Svavar ætlar að koma til mín og vera eina helgi og svo kemur Sverrir jibbý hlakka til að sjá ykkur. Jæja lesturinn bíður svo maður komist í Field´s í kvöld. Góða helgi