fimmtudagur, janúar 22, 2004

Undanfarna daga hef ég verið að leita mér að íbúð í kaupmannahöfn og er búin að finna nokkrar. Ég er víst orðin frekar sein með þetta því það er mega erfitt að fá íbúð í köben. En fyrir ykkur sem eruð að spá í að fara í skóla í köben þá er ég búin að finna síðu sem sér um að leigja kollegi fyrir nemendur út um alla danmörk www.ciu.dk (Centralindstillingsudvalget). Ég er búin að sækja um í skólann og nú er bara að bíða fram á vor eftir svari. Ég veit ekki hvað ég geri ef ég kemst ekki inn. Er reyndar að spá í að sækja um í noregi líka bara svona til vonar og vara.
Fór í mat til berglindar í gær, umm ekkert smá góður matur, enda eldaði ég (nei djók). Takk fyrir mig blind

see u l8er